top of page

Heill sé þér, Harpa

  • Writer: Villiljós
    Villiljós
  • Apr 22
  • 2 min read

Í dag er seinasti vetrardagur. Á morgun byrjar mánuðurinn harpa, fyrsti sumarmánuður ársins, en í gamla íslenska dagatalinu er árinu skipt í aðeins tvær árstíðir; sumar og vetur. Nöfnin á mánuðunum tengjast oft þeim lifnaðarháttum sem fólk bjó við í sveitasamfélaginu áður fyrr, eins og heyannir (seinni part sumars) eða mörsugur (um miðjan vetur). Mánuðirnir hefjast ávallt á ákveðnum vikudegi, svo það er örlítið breytilegt hvaða mánaðardag þeir byrja – sumardagurinn fyrsti er því alltaf fimmtudagur en fyrsti vetrardagur alltaf laugardagur.


Statue by sculptor Ásmundur Sveinsson of a naked woman holding a small child up in the air. The statue is in a lush, green garden with sunlight playing on dappled leaves at various focus levels within the photograph.
Ljósmynd af styttu í garði Ásmundar Sveinssonar. © Alda Villiljós.

Þegar ég var að vinna heimildavinnu fyrir ritgerðina mína um kváradaginn (hægt að lesa hér) rakst ég á áhugaverða þjóðsögu úr safni Sigfúsar Sigfússonar um árstíða-verur eða vætti. Söguna má lesa á Ísmús en í stuttu máli fjallar hún um konu sem lifir veturinn af með því að fara út kvöldið fyrir hvern nýjan útmánuð og bjóða mánuðina og vætti þeirra velkomin. Að launum færa vættirnar henni nægan mat.


Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, ýjar að því hér að áður fyrr gæti fólk hafa haldið upp á byrjun hvers mánaðar með því að bjóða mánuðina og vættirnar velkomin, jafnvel með lítilli veislu. Þetta rímar vel við þjóðsöguna fyrrnefndu en einnig við frásögn í safni Jóns Árnasonar um konudaginn, sem og frásögnina af Þorra og Góu (ætt þeirra virðist upp til hópa vera persónugervingar á ýmsum veðurfyrirbrigðum) úr Flateyjarbók þar sem konungurinn Þorri heldur Þorrablót og seinna Góublót í upphafi þeirra mánaða.


Eins og áður sagði byrja mánuðirnir ávallt á ólíkum mánaðardegi ár frá ári, en það er áhugavert að almennt verða mánaðarskipti í kringum þann tíma mánaðarins sem Sólin skiptir um stjörnumerki, eða á milli 18.-30. hvers mánaðar (sjá lista). Þó að það sé ekki hægt að segja að gamla íslenska dagatalið hafi verið reiknað út með tilliti til stöðu Sólar (eldri dagatöl notuðu aðra mánaðardaga) þá er gaman að þetta skuli hafa endað svona nálægt og ekki úr vegi að fagna komu hvers mánaðar samhliða komu nýs Sólarmerkis.


Ég stefni því á að byrja nýja hefð fyrir mig þar sem ég kveð mánuðinn sem er að enda og býð nýjan mánuð velkominn, samhliða breytingu Sólarinnar. Það væri gaman að heyra ef einhver önnur ákveða að taka þessa hefð upp með mér, hvort sem þið farið eftir íslenska dagatalinu, Sólarmerki eða veljið dag einhvern tímann um þetta leyti mánaðarins. Í tilefni af komu Hörpu, sem er stundum kölluð Gauksmánuður, orti ég lítið kvæði og öðrum er velkomið að fara með það eða semja út frá því svipaða heilsu.


Rekur Einmánuður rest

af rökkurs vetrarstundum

Hríðir víkja, frost og hret

hrím hverfur af grundum


Heill þér Harpa, heillin mín

heyrum syngja Gauka

Haltu utan hlýjum um mig

himins Sólarauka


Sól um sali Nautsins fer;

sæla og nautnahyggja

Grátfagra gyðju griðungur ber

gróandi ár þau byggja


Til hamingju með að hafa lifað af enn annan vetur og gleðilegt sumar!

Comments


© Alda Örlygur Villiljós 2023. Aftur á heimasíðu.

© 2016 ALDA VILLILJÓS 

bottom of page