Stjörnuveðrið á Hinsegin dögum 2026
- Villiljós

- Aug 3
- 4 min read
Hinsegin dagar eru haldnir hátíðlegir í vikunni eftir verslunarmannahelgina og þó að dagskráin byrji strax á frídegi verslunarmanna, þá er hátíðin formlega sett á hádegi á þriðjudeginum. Þann 26. júní árið 1999 var haldin fyrsta hinsegin hátíðin á Íslandi í tilefni þess að 30 ár voru liðin frá uppreisninni við Stonewall í Bandaríkjunum. Ári seinna var fyrsta gleðigangan skipulögð og með árunum hefur gangan þróast í vikulöng hátíðahöld undir nafninu Hinsegin dagar. Auk þess hafa hinsegin samtök á landsbyggðinni skipulagt sínar eigin göngur og hátíðahöld til að fagna fjölbreytileikanum. Með því að skoða stjörnukortið fyrir hádegi á þriðjudeginum og kortið fyrir gönguna sjálfa á laugardeginum, og bera þau saman við fyrstu viðburðina¹ get ég séð ýmisleg þemu sem gætu orðið áberandi í ár. Ég ætla að nota kortin fyrir bæði fyrsta fundinn '99, Hinsegin helgi, sem og fyrir fyrstu gleðigönguna árið 2000 til að spá fyrir um stjörnuveðrið á Hinsegin dögum í ár.

Hinsegin dagar eru með rísandi Vog í ár, en það er sama rísandi merkið og hin upprunalega Hinsegin helgi árið '99 var með. Þá var Mars í þann mund að rísa, sem gaf hreyfingunni gott aðdráttarafl og aðdáun, sem og hæfileika til þess að vekja athygli á málefninu án þess að ögra of mikið. Mars gaf þó drifkraftinn til þess að berjast fyrir réttindum samfélagsins og sætti sig ekki við hvað sem er. Í ár er Mars í Tvíbura, sem gefur jákvæða og drífandi orku til hins upprunalega korts, svo að með uppbyggilegum samskiptum munum við geta leyst úr hvaða ágreiningum sem koma upp. Rísandi merki stjörnukorta eru alltaf gríðarlega mikilvæg og Vogin er merki Venusar, ástargyðjunnar sjálfrar. Við setningu hátíðarinnar er Venus í Meyju en mun fljótt færa sig yfir í Vogina og verður þar þegar gangan sjálf fer fram. Við getum því búist við sérstaklega fallegri, litríkri og metnaðarfullri göngu. Í Voginni myndar Venus andstöðu við Neptúnus, sem getur gefið ríkulegan innblástur fyrir klæðnað og skreytingar, en í staðinn er öruggara að taka öllum rómantískum tilfinningum og áætlunum kvöldsins með þeim fyrirvara að dýrðarljóminn gæti enst stutt!
Þó að dagsetning Hinsegin daga færist alltaf aðeins til vegna tímasetningar verslunarmannahelgarinnar (sem er alltaf helgin fyrir fyrsta mánudaginn í ágúst) þá er Sólin alltaf í kringum miðju Ljónsmerkisins. Þannig lýsir hún upp mikilvægan part beggja upprunalegu kortanna sem tengjast sýnileika út á við, orðstír, áliti annarra og samfélagslegrar samheldni. Um leið ýtir hún við Úranusi í eldri kortunum, sem tengist í báðum tilvikum því að umbreyta samfélagslegum normum og hefðum sem eru orðnar úreltar. Í ár er Ljónsorkan sérstaklega sterk því í vikunni eftir Hinsegin daga verður almyrkvi á Sólu í Ljónsmerkinu sýnilegur á Íslandi. Þetta verður fyrsti myrkvinn í Ljóni síðan 2018 en árin '99 og '00 voru líka myrkvar í Ljónsmerkinu, enda endurtaka myrkvar sig í merkjunum á u.þ.b. 9 ára fresti. Sól- og Tunglmyrkvar gerast alltaf tvisvar á ári á svokölluðum myrkvatímabilum (e. eclipse season), sem eru jafnan 4-6 vikur í einu. Myrkvarnir marka oft byrjun eða endi á mikilvægum sögum eða þemum og það getur verið hjálplegt að líta til baka og skoða hvað gerðist á Hinsegin dögum árin 2008-09 og '17-18 til að fá hugmynd um hvað gæti breyst núna. Á næsta ári verða aftur myrkvar í kringum hátíðina, enda eru þeir í sömu merkjum í um eitt og hálft til tvö ár í einu, svo það gæti verið að breytingarnar komi ekki í ljós fyrr en eftir hátíðarhöld næsta árs.
Ég veit að mörg okkar erum uggandi eftir nýlega árás á hinsegin gönguna í Þýskalandi sem og vegna vaxandi hatursorðræðu í garð hinsegin fólks, sérstaklega trans fólks, bæði hérlendis og erlendis. Stjörnuspekin getur hjálpað okkur að komast í gegnum ýmsa erfiðleika með því að vara okkur við sem og sýna þá styrkleika sem við getum nýtt okkur. Í ár er Merkúr, pláneta samskipta, í áberandi hlutverki og hér getur það verið merki um að við munum þurfa að vera dugleg að tjá okkur um mikilvægi þessara daga út á við. Í sumum tilvikum munum við þurfa að þola neikvæða umræðu þeirra sem vilja enn lifa í fortíðinni eða eru hrædd við að missa sín réttindi á kostnað réttindabaráttu annarra. Þetta er algengur hræðsluáróður sem er oft notaður til þess að etja jaðarsettum hópum fólks á móti hvorum öðrum. Þess vegna vil ég minna á að það er mikilvægt að velja sér hvar og hvenær það er þess virði að tjá sig. Þau sem eru uppspretta hræðsluáróðurs um aðra jaðarhópa eru jafnan of langt leidd í sinni eigin hræðslu til þess að það sé hægt að tala um fyrir þeim, en það sama gildir ekki um öll þau sem sjá og lesa áróðurinn. Á samfélagsmiðlum er auðvelt að ginnast út í umræður við einstaklinga sem hafa það eitt að markmiði að vekja athygli á sjálfum sér, sama hversu vel hin manneskjan kemst að orði. Það er ekki hollt fyrir geðheilsuna að gefa nettröllunum að borða og það gerir ekkert fyrir málstaðinn að láta þau leiða sig áfram í gervi-samræðum. Ég mæli með að skrifa almennt bara eina athugasemd og slökkva svo á tilkynningum, eða bara skrifa ykkar eigin færslu með jákvæðari og uppbyggilegri boðskap til að deila.
Ég vona að þessi spá gefi ykkur innblástur til að njóta hinsegin daga í botn og við sjáumst á viðburðum og í göngunni! 💖
Ef þú vilt fá stjörnukortalestur fyrir þig eða gefa einhverjum að gjöf, þá geturðu flett upp þjónustunni sem ég býð upp á hér á vefsíðunni. Þú getur pantað lestur með því að senda skilaboð í gegnum síðuna, beint á villiljos@gmail.com, eða pantað í gegnum ko-fi síðuna mína.
¹ Árin '93 og '94 voru haldnar hinsegin kröfugöngur en ég ákvað að nota frekar þessa viðburði þar sem þeir þróuðust greinilega í það sem Hinsegin dagar eru í dag. Annað mögulegt kort væri að nota stofnun samtakanna Hinsegin daga, en þá væri ég að skoða þau samtök frekar en eiginlega viðburði.




Comments